Heima er best.

dsc01290.jpg

Ætla að setja inn smá færslu og vita hvernig þetta virkar hjá mér núna. Það var mjög gott að taka sér frí frá blogginu smá tíma. 'Eg gerði náttúrulega mikið meira enn það, ætlaði að hætta þessu bara.Eyddi öllu út. Það var vitleysa ég sé það nú. En það er með þetta eins og svo margt annað maður byrjar bara aftur, upp á nýtt..Jú jú ég sakna bloggvinanna og er rög við að byðja um bloggvináttu aftur. En takk Rósa mín að halda tryggð við mig og Samma mín það verður gaman að kynnast þér, viss um að við eigum eftir að eiga gott samband.

Páskarnir voru mjög rólegir hjá okkur hérna vorum bara tvö heima. Byrjuðum aðeins á undirbúnigi fyrir málingarvinnu og bóndinn að dunda sér við að fiksa bílinn.  Er ekki búin að taka endanlega ákvörðunn um hvenær ég fer til Köben, og ætli ég geymi það bara ekki fram í mai, hlakka til að hitta krakkana þar og vera með henni dóttir minni sem er að fá sitt fyrsta barn.(og barnabarn nr 6)hjá okkur. 'Eg er rík kona.Smile Svo eru farseðlarnir keyptir fyrir dúllurnar mínar sem koma til okkar frá 'Islandi í byrjun júní og ætla að vera hjá ömmu og afa eitthvað fram eftir sumri. Það verður yndislegt að fá þær hingað og hlakkar okkur mikið til þess..

Bóndin er farin að vinna burtu,(langvekkistan) svo nú er ég svona grasekkja ha ha . Ekki neitt nýtt að hann þurfi að vera heimanífrá lang tímum saman vegna vinnu.. og við litli stóri minn tvö heima  Það er líka ágætt.höfum um margt að spjalla þessa dagana.  Hann er farin að undirbúa sig undir lokaáfangan í þessum skóla sem hann er í núna og svo er það framhaldsnám næsta haust. það verður gaman að fylgjast með hvernig það gengur en ég er bjártsýn hef tröllatrú á honum syni mínum...hann stendur sig.Heart      Læt þetta duga núna kv Sirrý.               Lyngdal.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Sæl Sirrý mín gaman að fá þig í bloggvina hópinn,maður er alltaf að tapa góðum vinum út en vonandi ekki sem vinum samt.Hafðu það sem best vinkona og verðum í bandi,kv.Sigga

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 15.4.2009 kl. 23:09

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Sirrý mín

Gott að einhver sakni mín. Flottur köttur. Mætti halda að kattargreyið hafi verið settur í klórbað.

Verum í bandi

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 15.4.2009 kl. 23:38

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Takk fyrir bloggvinabod kæra Sirrý.Tad er yndislegt ad vera med börnunum og ná til teyrra,Vonandi hittumst vid í købenferdinni og oftar.tad er líka gott ad hvíla sig frá blogginu en gott koma aftur t,tarna eru bloggvinirir enntá ,tó ekki allir tví midur.

Hjartanskvedja frá Hyggestuen upp í Lyngdal. 

Gudrún Hauksdótttir, 16.4.2009 kl. 08:09

4 identicon

Sæl Sirrý mín.

Takk fyrir endurnýjaða bloggvináttu. Gott að vera orðin bloggvinur þinn aftur.

Kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir 16.4.2009 kl. 17:33

5 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Blessaðar kæru vinur takk fyrir ynnlitið og kvittið hjá mér.     Sigga mín takk fyrir að samþykkja mig sem bloggvin, já við missum ekki af hvor annari nei nei það er eg viss um.

Rósa mín. Hún er falleg hún kisan okkar og hvít sem mjöll.(ekkert klórbað þar) er  annars alveg ferleg með klórþvott he he.    Bandið heldur á milli okkar... Guð veri með þér og þinum kv austur í sólina til þín.

Guðrún mín Já við komum alveg örugglega til að hittast. Stíla ferðina inn á þennan tima. Hlakka mikið til að fá stelpurnar hingað og eins að hitta ykkur í köben.   

'Asdís mín og Líney mín takk fyrir að samþykkja  bloggvináttu.. Gott að vera komin í samband aftur. kv Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 16.4.2009 kl. 19:47

7 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Takk 'Asdís mín fyrir ynnlitið  sömuleiðis kæra vinkona takk fyrir endurnýjuna. .  kv til þín og þinna

það er greynilega ennþá eitthvað ekki ok með athuasemdakerfið hjá mér .Þarf að ath þetta eitthvað.

Rósa mín Hún er flott þessi hvíta er þetta þín kisa???? kv Sirry

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 17.4.2009 kl. 19:50

8 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Ó nei.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.4.2009 kl. 19:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Lífið og tilveran.

Höfundur

Sigríður Ásdís Karlsdóttir
Sigríður Ásdís Karlsdóttir
'Eg er eins og ég er.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...dsc00564
  • ...dsc00533
  • ...dsc01732
  • ...dsc01735
  • ...dsc01731

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband